| Læknar hafa eftirlit með sjálfum sér |
Vanskráning mistaka heilbrigðisstarfsmanna er þekkt og jafnvel viðurkennt vandamál innan heilbrigðisstéttarinnar. Heilbrigðisstarfsmönnum ber samkvæmt lögum að skrá öll mistök og óvænt atvik sem eiga sér stað en engin eftirfylgni er með að það sé gert og virðast þeir komast upp með að að skrá ekki mistök sem þeir verða valdir að.
Í nýjasta hefti tímarits Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er fjallað um lyfjamistök hjúkrunarfræðinga. Þar kemur fram að lyfjamistök eru tíð hérlendis sem erlendis og að mikilvægt sé að vinna að úrbótum á lyfjaferlinu svo draga megi úr tíðni þeirra. Heilbrigðisstarfsmönnum á Íslandi er skylt samkvæmt lögum að skrá öll óvænt atvik í atvikaskrá þ.m.t. lyfjamistök (lög um landlækni, 2007) en vanskráning er þekkt og jafnvel viðurkennd. Hjúkrunarfræðingurinn Auðbjörg Reynisdóttir, þekkir læknamistök af eigin raun og hefur látið reyna á kerfið. Í samtali við Pressuna sagði Auðbjörg að ótrúleg þöggun sé ríkjandi í heilbrigðisstéttinni og að erfitt sé að fá einhver svör um hvernig tekið sé á mistökunum. Hún segir viðbragðsleysið hjá heilbrigðiskerfinu, þegar slík mál koma upp, vera algert og að ekkert ferli fari í gang innan spítalans;
Auðbjörg segir að spítalinn hafi viðurkennt fyrir henni að um mistök hefði verið að ræða en síðar kom í ljós að ekkert hafði verið skráð í atvikaskrá eins og lög segja til um, þöggun innan heilbrigðiskerfisins sé svo mikil að menn komist upp með að vanrækja skyldur sínar. Eins og gefur að skilja, auðveldar það fólki ekki að sækja rétt sinn þegar skráning mistakanna er með þessum hætti. Í grein sem Auðbjörg skrifaði og birtist í Fréttablaðinu í vikunni vakti hún athygli á því að til hefði staðið lengi að gera rannsókn um mistök í heilbrigðiskerfinu. Enn hefur ekki fengist fjármagn í gerð skýrslunnar sem hún segir að sé eins og að fá á sig kjaftshögg. Auðbjörg segist hafa fengið mikil viðbrögð eftir að greinin birtist og að fjöldi fólks sé í svipaðri stöðu og hún. Þann 3. júní síðastliðinn sagði Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, við Fréttablaðið að henni fyndist eðlilegt að ráðist yrði í rannsóknir á mistökum í heilbrigðiskerfinu;
|

Vanskráning mistaka heilbrigðisstarfsmanna er þekkt og jafnvel viðurkennt vandamál innan heilbrigðisstéttarinnar. Heilbrigðisstarfsmönnum ber samkvæmt lögum að skrá öll mistök og óvænt atvik sem eiga sér stað en engin eftirfylgni er með að það sé gert og virðast þeir komast upp með að að skrá ekki mistök sem þeir verða valdir að.