Hjartalíf.is á Facebook


Lítil breyting á biðlistum

Facebook   

adgerd1Landlæknisembættið segir að staða á biðlistum eftir völdum skurðaðgerðum á sjúkrahúsum og læknastofum sé almennt góð í júní, ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Þó séu þar undantekningar á, svo sem vegna gerviliðaaðgerða á hné. 

Enn sem fyrr er enginn biðlisti eftir almennum skurðaðgerðum né aðgerðum vegna krabbameins, en kvartað hefur verið undan slíkum biðlistum í ýmsum nágrannalandanna, segir í greinagerð.

Þá segir að biðlistar eftir kransæðaaðgerðum, sem hafi verið talsverðir fyrir nokkrum árum, séu nú nánast horfnir. Þetta eigi við um bið lengur en í þrjá mánuði. Tekið er fram að bent hafi verið á að vegna eðli þessara biðlista væri ef til vill réttara að miða við styttri tíma, t. d. bið í meira en einn mánuð, en samræmisins vegna hefur þessu ekki verið breytt.

Einnig kemur fram að fjöldi á biðlista vegna aðgerðar á augasteini hafi hríðlækkað, enda farið að gera slíkar aðgerðir í meira mæli utan spítala.

Upplýsingar um aðgerðir vegna brjóstauppbyggingar í kjölfar brjóstnáms bárust nú í fyrsta sinn. Voru 36 konur á þeim biðlista en voru 45 á sama tíma í fyrra.

Vegna árstíðasveiflna í biðlistum er best að bera saman bið eftir aðgerðum í sama mánuði árin áður. Við slíkan samanburð kemur fram að staðan hefur nánast hvergi versnað, nema hvað varðar gerviliðaaðgerðir á hné. Fjöldinn á biðlista eftir slíkri aðgerð er svipaður og var fyrir þremur mánuðum, en hafði þá aukist talsvert.

Segja má að staðan sé furðugóð miðað við samdrátt í mannafla og miðað við þann árangur sem t.d. Landspítali hefur náð í að halda kostnaði innan ramma fjárlaga, segir í greinagerðinni.

www.mbl.is 24.06.2010

Athugasemdir (0)
Skrifa athugasemd
Upplýsingar um þig:
Athugasemd:
Öryggisatriði
Vinsamlegast skrifaðu öryggis-kóðann sem þú sérð í myndinni hér fyrir ofan.
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 0045-5225-2800