Hjartalíf.is á Facebook


Hjartalíf 5 ára

Facebook   

hjartalif_raudbUm þessar mundir fagnar www.hjartalif.is fimm ára afmæli sínu en síðan hefur verið í loftinu frá því í byrjun mars 2005.  Hjartalíf.is hefur það markmið að miðla upplýsingum til almennings, hjartasjúkra og aðstandenda þeirra um hin ýmsu hjartans mál. Stofnendur  og eigendur hjartalif.is  eru  undirritaður Björn Ófeigsson, og eiginkona mín Mjöll Jónsdóttir.
Þann 9. febrúar 2003 fékk ég hjartaáfall og í kjölfarið hjartabilun. Það tók mig þó nokkurn tíma að átta mig á því hvað hafði gerst, ég var ráðvilltur og mig vantaði upplýsingar bæði um sjúkdóminn og líf eftir hjartaáfall. Það var í kjölfar þessarar upplýsingaleitar minnar að hugmyndin að www.hjartalif.is vaknaði og var vefurinn settur í loftið í byrjun mars 2005. Síðan þá hefur vefurinn vaxið og dafnað, ekki síst eftir að hann fékk Íslensku vefverðlaunin árið 2008 sem besti einstaklingsvefurinn árið 2007.

Hluti af því efni sem á vefnum má finna er mín saga; mín veikindi og hvernig ég tekst á daglegt líf með hjartabilun. En hjartasjúkdómar eru ekki einkamál sjúklingsins. Mjöll, hefur fylgt mér í þessu magnaða ferðalagi og hefur fundið fyrir því af eigin raun að fjölskylda og vinir þurfa einnig upplýsingar og ráðgjöf um ýmislegt tengt sjúkdómnum. Ferðalag Mjallar hefur verið merkilegt og heldur Mjöll utan um málefni tengd aðstandendum á síðunni undir liðnum Hjartavinir
Upplýsingar eru raunveruleg forvörn þegar kemur að hjarta- og æðasjúkdómum en Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök á Íslandi og því mikilvægt að fólk hafi gott aðgengi að upplýsingum og fróðleik þeim tengdum. Ekkert hjartatengt efni er okkur óviðkomandi.

Århus 9. Mars 2010
Björn Ófeigsson

Athugasemdir (0)
Skrifa athugasemd
Upplýsingar um þig:
Athugasemd:
Öryggisatriði
Vinsamlegast skrifaðu öryggis-kóðann sem þú sérð í myndinni hér fyrir ofan.
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 0045-5225-2800