| D-vítamín mikilvægara en talið var |
|
D-vítamín er líkt og A-, E- og K-vítamín fituuppleysanlegt. Það þýðir að ekki er hægt að leysa vítamínið upp í vatni og því skilar það sér ekki út með þvagi fái líkaminn of mikið af D-vítamíni líkt og gerist þegar fólk fær of stóran skammt af C-vítamíni. |

Nýjar rannsóknir sýna að D-vítamín er miklu mikilvægara fyrir líkamann en áður var talið. Vitað var að D-vítamín er nauðsynlegt líkamanum, verndi gegn krabbameini og beinþynningu. En nú hefur komið í ljós að D-vítamín gegnir lykilhlutverki í ónæmiskerfi líkamans. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Berlingske Tidende.