| Hjartamiðstöð - bráðamóttaka |
|
Á umliðnum árum þekki ég dæmi um brjóstverkjasjúkling sem kom inn í Fossvog og var veitt fyrsta aðhlynning þar og síðan fluttir niður á Hringbraut. Þessi sjúklingur lenti í alvarlegum skaða vegna tafa á réttri greiningu og meðhöndlun. Ástæða þessa var sú að gögn annaðhvort skiluðu sér ekki með sjúklingum eða það sem er öllu verra, gögnin ekki lesin og yfirfarinn af þeim starfsmönnum sem tóku á móti sjúklingnum við Hringbraut. Einnig veit ég um tilfelli þar sem pappírar og gögn hafa horfið með öllu og gefur auga leið að slíkt er ekki gott. Ég verð því að taka breytingum þessum með fyrirvara og vonast til þess að stjórnendur LSH útskýri þetta betur fyrir almenningi þannig að engin velkist í vafa um hvert hann á að fara og þá á hvaða tímum. Það hlýtur eftir allt alltaf að bjóða hættunni heim að vera með bráðmóttöku á tveim stöðum og þá sérstaklega þegar brjóstverkjasjúklingar eiga í hlut. Århus 05.03.2010 Björn Ófeigsson |

Mitt í blóðugum niðurskurði á Landspítalanum verð ég að játa að mér lýst vel á