Hjartalíf.is á Facebook


Konur fræddust um hjörtu á konudaginn

Facebook   

kvennakrHJARTAVERND nýtti konudaginn til að halda GoRed hátíð í Reykjavík og á Akureyri. GoRed er alheimsátak á vegum Alþjóðahjartasambandsins og er verndari átaksins hér á landi Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.

GoRed átakinu er ætlað að gera konur meðvitaðri um hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum og í Háskóla Íslands sóttu yfir 400 konur GoRed hátíðina og hlýddu á erindi Axels F. Sigurðssonar, hjartalæknis, og Vilborgar Sigurðardóttur, hjartalæknis og formanns GoRed á Íslandi. Þar komu fram nokkuð sláandi tölur um háa dánartíðni kvenna í Evrópu af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Nær jafnmargir karlar og konur deyja af völdum kransæðastíflu, en mun fleiri konur, eða 17%, deyja vegna heilablóðfalls. 11% karla deyja af sama sjúkdómi.

Í máli Axels kom fram að þótt hjarta- og æðasjúkdómar séu algengari hjá körlum en konum í yngri aldursflokkum, snýst dæmið við á efri árum. Konur þurfa því að huga betur að forvörnum og heilbrigðum lífsstíl. Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum, eru reykingar, sykursýki, blóðfituröskun, ofþyngd, kyrrsetulíf og streita.

Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Morgunblaðið 22.02.2010

Athugasemdir (0)
Skrifa athugasemd
Upplýsingar um þig:
Athugasemd:
Öryggisatriði
Vinsamlegast skrifaðu öryggis-kóðann sem þú sérð í myndinni hér fyrir ofan.
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 0045-5225-2800