| Öryggi sjúklinga |
|
Ég verð aldrei samur maður og ég öðlast aldrei aftur þá heilsu sem ég hafði. Ég lifi með hjartabilun og verulega skert lífsgæði. Engin frá LSH hefur nokkru sinni beðið mig afsökunar eða látið í ljós að þar þyki fólki leitt að mistökin hafi átt sér stað. Frá þessum tíma hefur öryggi sjúklinga verið mér hugleikið. Undanfarnar vikur hefur mér oft verið hugsað til þeirra vinnubragða sem ég hef fengið að upplifa frá mörgum í læknastétt, stjórnendum LSH og jafnvel eftirlitsaðilum. Á undanförnum vikum hef ég fylgst með því hvernig sumir þessara aðila hafa risið upp á afturlappirnar og brugðist illa við gagnrýni á vinnubrögð. Ég sem sjúklingur hef staðið í málaferlum við LSH í á áttunda ár og á þeim tíma hef ég fengið að kynnast þeim meðulum sem læknastéttin notar til að verja sig og sína. Til þess eru þeir tilbúnir til að verja miklum fjármunum og tíma. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en svipuðum aðferðum sé beitt á alla þá sem leggja fram gagnrýni á störf þeirra og starfsaðferðir sem þar ráða ríkjum. Sú staðreynd gerir það að verkum að á köflum velti ég því alvarlega fyrir mér hvort þessir aðilar eru tilbúnir til að kasta meiri hagsmunum fyrir minni vegna þess að það hentar þeim og tryggir þeim völd. Það er dapurlegt að fylgjast með þeirri aðför sem nú á sér stað gagnvart heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni í nafni niðurskurðar. Kannski er það dapurlegast hvernig stjórnendur LSH virðast nota tækifærið og reyna að kippa stoðunum undan rekstri margra heilbrigðisstofnanna í kring um sig undir þeim formerkjum að á LSH sé stóri bróðir og þar eigi að vera upphaf og endir alls. Því skal haldið til haga að ég efast ekki um, þrátt fyrir gagnrýni mína á ýmsa í læknastétt að meginþorri þeirra sem þar starfa sinna sínum störfum af mikilli kostgæfni og eiga heiður skilið fyrir sín störf. Árósum 10. Febrúar. 2010 |

Í gær voru sjö ár síðan ég fékk hjartaáfall. Í gær voru sjö ár síðan starfsmenn Landspítala háskólasjúkrahúss tóku sér átta klukkustundir til að greina ástand mitt og veita mér viðhlítandi meðferð. Í gær voru sjö ár síðan að mistökin áttu sér stað og hefur það verið staðfest með dómi svo óyggjandi er. Fram kom í réttarhaldinu að sérfræðilæknirinn á vakt hafði ekki skoðað öll gögn sem búið var að vinna þegar hann hitti mig auk þess sem hann skoðaði ekki ný gögn þegar þau bárust heldur nokkrum klukkustundum síðar.