Hjartalíf.is á Facebook


Heimska veldur hjartasjúkdómum

Facebook   

HjartaringLág greindarvísitala er einn helsti áhættuþáttur hjartasjúkdóma, samkvæmt niðurstöðum vísindamanna við MRC-stofnunina í Glasgow. Aðeins reykingar eru taldar auka meira á líkurnar á slíkum sjúkdómum.

Þetta kemur fram á vef Telegraph í dag. Yfir þúsund karlar og konur frá Skotlandi tóku þátt í rannsókninni en niðurstöður hennar hafa verið birtar í læknavísindatímaritinu European Journal of Cardiovascular Prevention and Rehabilitation.

David Batty, sem var í forsvari fyrir rannsóknina, segir að þeir sem eru með lága greindarvísitölu séu síður líklegir en þeir sem eru með háa greindarvísitölu til að stunda reglubundna hreyfingu í heilsuskyni.

www.dv.is 10.02. 2010

http://www.dv.is/frettir/2010/2/10/heimska-veldur-hjartasjukdomum/

Athugasemdir (0)
Skrifa athugasemd
Upplýsingar um þig:
Athugasemd:
Öryggisatriði
Vinsamlegast skrifaðu öryggis-kóðann sem þú sérð í myndinni hér fyrir ofan.
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 0045-5225-2800