| GoRed |
|
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna. GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2006. Verndari átaksins á Íslandi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.
Við vonumst til að þú sjáir þér fært að taka þátt í GoRed fyrir konur átakinu með okkur í Reykjavík eða á Akureyri
Dagskrá í Reykjavík - sunnudaginn 21. febrúar Aðalbygging Háskóla Íslands 13:30-15:00 13:30 Hátíðarsalur
14:15 Tískusýning í Hátíðarsal
14:30-15:00 Kynning og fræðsla
Allar konur leystar út með gjöfum:
Hreyfing heilsulind er með 2 fyrir 1 tilboð á mánaðarkortum til 1. mars 2010. Gildistími beggja kortanna verður að vera sá sami. Um að ræða grunnaðild. Dagskrá á Akureyri - sunnudaginn 21. febrúar Hótel KEA 14:00-15:50 Opnun
Erindi
Allar konur leystar út með gjöfum:
Ekki bíða til morguns – hugsaðu um hjartað þitt í dag! |

