| Börnum hætt við hjartasjúkdómum af völdum offitu |
Börnum allt niður í þriggja ára getur verið hætt við hjartasjúkdómum ef þau eru í yfirvigt. Þetta sýnir ný rannsókn sem gerð var við Háskólann í Norður Karólínu.Rannsókn á 16 þúsund börnum og unglingum sýnir að feitustu börnin geta borið einkenni um óreglulegan hjartslátt sem getur verið fyrirboði um hjartasjúkdóma í framtíðinni. Þessar hjartsláttatruflanir eru taldar orsakast af of miklu magni af svokölluðu CRP próteini í líkamanum. Rannsakendurnir segja þó að þörf sé á frekari rannsóknum til þess að sýna betur fram á þessi tengsl Fræðimennirnir við Háskólann í Norður Karólínu skoðuðu börn á aldrinum eins árs til sautján ára. Næstum 70% barnanna voru í eðlilegri þyngd, en um 30% barna voru of feit. www.visir.is 01.03.2010 |

Börnum allt niður í þriggja ára getur verið hætt við hjartasjúkdómum ef þau eru í yfirvigt. Þetta sýnir ný rannsókn sem gerð var við Háskólann í Norður Karólínu.